Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
Frábær hljómur
Kvikmyndir hljóma víðáttumeiri og samræður verða skýrari. Bassinn slær af
meiri krafti og hljóðið berst úr öllum áttum. Allt þetta kemur saman í hönnun
sem er nánast jafn fyrirferðarlítil og Beam.
Fyllir allt rýmið af hljóði
Með Dolby Atmos færðu raunverulegt 7.1.2 umhverfishljóð. Bílar þjóta yfir
herbergið og rigningin fellur úr loftinu. Hvísl heyrist við hliðina á þér og hvert
augnablik verður stærra, raunverulegra og meira grípandi.
Fullkomið hljóðkerfi sem getur stækkað
Bættu við bassahátalara fyrir enn meiri kraft og dýpt. Bættu við bakhátölurum
til að sökkva þér algjörlega inn í hverja senu. Settu Sonos í fleiri herbergi
og fylltu heimilið af tónlist.
Samræður verða skýrari
AI Speech Enhancement gerir tal og samræður skýrari þegar mikið er að gerast á
skjánum eða þegar umhverfishávaði er til staðar. Þú getur stillt styrkinn í
Sonos appinu eftir eigin smekk.
Heyrðu meira við lágan hljóðstyrk
Horfðu á sjónvarpið án þess að vekja alla á heimilinu. Night Sound dregur úr
háværustu hljóðunum og undirstrikar jafnframt hljóðatriði sem annars gætu farið
fram hjá þér.
Fínstillt fyrir þitt rými
Trueplay™ greinir hljómburð herbergisins og stillir Beam Ultra sjálfkrafa fyrir
bestu mögulegu hljóðupplifun. Hvort sem rýmið er opið og stórt eða notalegt og
afmarkað, þá hljómar allt eins og það á að gera.
Tengist auðveldlega
Tengdu Beam Ultra við sjónvarpið þitt og Sonos appið leiðbeinir þér skref
fyrir skref í gegnum uppsetninguna. Núverandi fjarstýring virkar sjálfkrafa, án
frekari stillinga.
Bakhátalarar sem fylgja þér
Notaðu par af Sonos Play eða Move 2 hátölurum sem bakhátalara fyrir
umhverfishljóð. Þegar kvöldmyndinni lýkur geturðu einfaldlega tekið þá með þér
og notað þá annars staðar á heimilinu.
Umhverfishljóð fyrir þig. Kyrrð fyrir aðra.
Sendu hljóðið frá sjónvarpinu beint í Sonos heyrnartólin þín, með Dolby Atmos
stuðningi. Þú getur notið kvikmynda og
þátta á fullum styrk án þess að trufla nokkurn annan.
Tekur ekki sviðsljósið
Beam Ultra er nett og fellur fullkomlega undir sjónvarpið og hönnuð til að
renna inn í umhverfið án þess að draga athyglina frá því sem skiptir máli. Hægt
er að staðsetja hana á sjónvarpsskáp eða festa hana á vegg með Beam Ultra
veggfestingunni.
Nánari tæknilýsing
Hátalarar
Dolby Atmos
Já
Gerð
7.1.2
Magnari
Class D
Net
Bluetooth
5.3
WiFi-Staðall
WiFi-6
Tengimöguleikar
Fjöldi HDMI 2.1 Tengja
1
Fjöldi USB-C tengja
1
Eiginleikar
Airplay 2
Já
Lærir á fjarstýringu
Já
Snertitakkar
Já
Trueplay
Já
Speech Enhancement emphasizes
Já
Stærðir
Litur
Hvítur
Þyngd
2.9 Kg
Stærð (B x H x D)
750 x 65 x 105 mm
Annað
Annað
eARC