Ábyrgðarskilmálar

Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á sala@rafland.is. Rafland áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð. 

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003, en vörum sem ætlaður er umtasvert lengri endingartími en 5 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgðartíma á framleiðslugöllum. Jafnframt eru vörur úr Kitchenaid Artisan línunni, m.a. hin vinsæla Kitchenaid Artisan hrærivél, með 5 ára ábyrgðartíma. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar.  Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru. 

Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Raflands eða öðru verkstæði sem Rafland samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en viðurkenndu verkstæði Raflands, búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð og gildir ábyrgðin frá kaupdegi.