Fyrirvarar

Af öllum pöntunum dreift af Póstinum og Samskip gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins og Samskipa um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins og vefsíðu Samskipa.

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag, með fyrirvara um álag og að allar vörur séu til á lager. Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.

 

 

 

Fyrirvarar

Við keyrum út alla virka daga á milli 14-19 og á laugardögum milli 12-16. Ef pantað er fyrir hádegi er oftast hægt að fá afhent samdægurs en á álagstímum getur afhending tekið lengri tíma. Ekki er hægt að óska eftir ákveðnum tíma innan aksturslotunnar.

Ef bílstjóri metur aðgengi sem ábótavant (t.d. snjór eða mikil hálka á tröppum/stétt eða húsgögn og innréttingar í gangvegi inni á heimili) getur hann tekið vöruna til baka og frestað afhendingartíma þar til aðgengi hefur lagast, á kostnað kaupanda. Vertu því viss um að aðgengið hjá þér sé gott þegar þú átt von á okkur.

Bílstjóri sér ekki um að tengja tæki eða uppsetningu á þeim fyrir notkun. Bílstjóri sér ekki heldur um að aftengja eldri tæki sem á að fara með í endurvinnslu.

Sé eitthvað óljóst eða þurfir þú aðstoð er best að hringja í síma 520-7900 eða senda tölvupóst á sala@rafland.is.