Roborock sláttuvélmenni – næsta kynslóð sjálfvirkrar garðumhirðu

Roborock hefur varið meira en áratug í að gera heimilishreingerningu áreynslulausa. Nú hefur þessi þekking, tækni og reynsla færst út fyrir stofuveggina og út í garðinn. Með tilkomu nýjustu sláttuvélmennanna, RockNeo og RockMow, markar Roborock ný tímamót í þróun snjallra garðlausna. Sláttuvélmennin eru hönnuð með framtíðarsýn að leiðarljósi: þau hugsa sjálfstætt, hreyfast af mikilli nákvæmni og skila áreiðanlegum afköstum.

Öll sláttuvélmennin búa yfir þeim eiginleikum sem Roborock er orðið þekkt fyrir: skynsamri og nákvæmri leiðsögn, hnökralausum vinnubrögðum og notendavænu snjallforriti þar sem auðvelt er að stilla sláttutíma, afmarka svæði og fylgjast með slættinum í rauntíma, jafnvel þegar enginn er heima. Þetta gerir þeim kleift að sinna bæði litlum og stórum lóðum á áreynslulausan hátt og tryggja að garðurinn haldist vel snyrtur allt árið um kring. Uppsetning er einföld og algjörlega vírlaus þar sem ekki er þörf á jaðarvír. Viðhald er einnig einfalt og þægilegt.

Þannig getur þú notað minni tíma í að hugsa um garðinn og meiri tíma í að njóta hans.

RockNeo sláttuvélmenni eru hagkvæm og einföld lausn fyrir minni garða allt að 1.000m². Þau kortleggja garðinn af mikilli nákvæmni með RTK gervihnattatækni og myndavélakerfi, og í Roborock appinu er auðvelt að skilgreina sláttusvæði og bannsvæði. RockNeo sláttuvélmennin aðlaga sig ójöfnu undirlagi, ráða við brekkur allt að 45%, fer í gegnum þrönga staði niður í 70cm og klippa allt niður í 3cm frá brúnum. Sláttuhæð er stillanleg og viðhald er einfalt og þægilegt.

RockMow-sláttuvélmennin, RockMow S1 og RockMow Z1, eru hönnuð fyrir stærri og flóknari lóðir. RockMow S1 er tvíhjóladrifið sláttuvélmenni, fullkomið fyrir meðalstóra garða. RockMow S1 sláttuvélmennin blanda saman kraftmikilli stýringu og lipurri hreyfigetu og sinnir slætti á svæðum allt að 1.500m². Vélmennin kortleggja garðinn af mikilli nákvæmni með RTK gervihnattatækni og myndavélakerfi, og í Roborock appinu er auðvelt að skilgreina sláttusvæði og bannsvæði. Sláttuvélmennin takast á við 45% halla, fara í gegnum þrönga staði niður í 70cm og klippa allt niður í 3cm frá brúnum. 

RockMow Z1 er afkastamesta gerðin, með fjórhjóladrifi og háþróuðu fjöðrunarkerfi sem gerir vélmenninu kleift að takast á við allt að 80% halla og tryggir sléttar beygjur og sveigjanlega stjórnun, jafnvel á ójöfnu undirlagi. Kraftmikið, stöðugt og sjálfsöruggt vélmenni sem nær af öryggi yfir allt að 5.000m² á dag. Með RTK gervihnattatækni og VSLAM myndavélakerfi kortleggur vélin garðinn með mikilli nákvæmni og vinnur skipulega eftir fyrirfram skilgreindu korti. Í Roborock appinu er hægt að skilgreina sláttusvæði, leiðir og bannsvæði sem gefur fulla stjórn á slættinum.

Sláttuvélmennin frá Roborock

✔ kortleggja garðinn af nákvæmni
✔ slá nákvæma skurði við brúnir án þess að fara alveg upp að jaðrinum
✔ greina og forðast hindranir
✔ er hægt að tímastilla

Aukahlutir