Roborock Q105 er vandaður og afar nákvæmur slátturóboti sem hannaður er fyrir minni garða allt að 500 m². Vélin sameinar háþróaða leiðsögutækni og snjalla stýringu sem tryggir jafnan og fallegan grasslátt með lágmarks fyrirhöfn. Uppsetning er einföld og þægileg þar sem ekki er þörf á jaðarvír, sem gerir uppsetninguna bæði hraðvirka og auðvelda í framkvæmd.

Leiðsögukerfi Q105 byggir á RTK gervihnattatækni í samspili við VSLAM myndavélakerfi sem kortleggur garðinn af mikilli nákvæmni. Í Roborock appinu er auðvelt að skilgreina sláttusvæði, leiðir á milli þeirra og afmarka bannsvæði þar sem vélin á ekki að fara, til dæmis í kringum blómabeð, tré eða aðrar hindranir. Þessi kerfisbundna kortlagning gerir sláttinn markvissari og skilvirkari en hjá hefðbundnum slátturóbotum.

Fljótandi sláttudiskur aðlagar sig að yfirborði garðsins og tryggir jafnan og snyrtilegan skurð, jafnvel á ójöfnu undirlagi. Gúmmíhjól með góðu gripi stuðla að stöðugum akstri og gera vélinni kleift að takast á við brekkur allt að 45% án vandræða.

Sláttuhæð er stillt handvirkt á bilinu 20–60 mm, sem veitir góðan sveigjanleika eftir aðstæðum og árstíma. Sláttubreidd er 22 cm sem tryggir skilvirkan og jafnan slátt.

Með PreciEdge kantskera (aukabúnaður) getur vélin slegið mjög nálægt köntum og hornum, sem dregur verulega úr þörf á að snyrta kanta handvirkt.

Hún tengist með Bluetooth og WiFi og býður upp á 4G tengingu (seld sem aukabúnaður) sem gerir þér kleift að fylgjast með og stýra vélinni hvar sem er.

Q105 er hljóðlát í notkun, aðeins um 59 dB, og hentar því vel til daglegrar notkunar án truflunar.

Viðhald er einfalt og þægilegt. Auðvelt er að skipta um hnífa og með IPX6 vatnsvörn er hægt að hreinsa vélina með garðslöngu án vandkvæða.

Stærðir

Svæði

Allt að 500m2

Sláttubreidd

22cm

Sláttuhæð

20-60mm (handstillt)

Mesti halli

45%

Eiginleikar

App

Roborck app

Tímastillir

Leiðsögukerfi

RTK gervihnattastaðsetning + VSLAM myndavél

Tenging

Wi‑Fi + Bluetooth

Kantskeri

Selt sem aukahlutur

Regnskynjari

Vatnshelt

IPX6

Vírlaus sláttursvæði

Hljóð

Hljóðstyrkur (dB)

59

Annað

Annað

4G módel selt sem aukahlutur