Verslanir
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






+6
Vörulýsing
Roborock S115 er nákvæmur og skilvirkur slátturóboti sem hannaður er fyrir stærri garða allt að 1.500 m². Vélin sameinar háþróaða leiðsögutækni og snjalla stýringu sem tryggir jafnan og snyrtilegan grasslátt með lágmarks fyrirhöfn. Uppsetning er einföld og algjörlega vírlaus þar sem ekki er þörf á jaðarvír.
Með RTK gervihnattatækni og VSLAM myndavélakerfi kortleggur vélin garðinn nákvæmlega og vinnur skipulega eftir skilgreindu svæði. Í Roborock appinu er hægt að setja upp mörg sláttusvæði, leiðir og bannsvæði, sem gefur fulla stjórn á slættinum og tryggir markvissari niðurstöðu.
Fljótandi sláttukerfi aðlagar sig að undirlagi og tryggir jafnan og snyrtilegan árangur, jafnvel á ójöfnu yfirborði. Vélin er búin gripmiklum hjólum og ræður við allt að 45% halla sem gerir hana hentuga fyrir fjölbreyttar aðstæður.
Sláttuhæð er stillt í gegnum appið á bilinu 20–60 mm sem gerir þér kleift að aðlaga slátt og sláttuhæð að þínum þörfum. Sláttubreidd er 22 cm sem tryggir skilvirkan slátt.
Með PreciEdge kantskera nær vélin mjög nálægt köntum og hornum sem dregur úr þörf á að snyrta kanta handvirkt.
Vélin tengist með Bluetooth og WiFi og býður upp á 4G tengingu (seld sem aukabúnaður) sem gerir þér kleift að fylgjast með og stýra vélinni hvar sem er.
S115 er hljóðlát í notkun, aðeins um 58 dB, og hentar vel til daglegrar notkunar án truflunar.
Viðhald er einfalt og þægilegt. Hnífar eru auðveldir í skiptum og með IPX6 vatnsvörn er hægt að þrífa vélina með garðslöngu.
Nánari tæknilýsing
Stærðir
Svæði
Allt að 1500m2
Sláttubreidd
22cm
Sláttuhæð
20-60mm (stillt í appi)
Mesti halli
45%
Eiginleikar
App
Roborock app
Tímastillir
Já
Leiðsögukerfi
RTK gervihnattastaðsetning + VSLAM myndavél
Tenging
Wi‑Fi + Bluetooth
Kantskeri
Já
Regnskynjari
Já
Vatnshelt
IPX6
Vírlaus sláttursvæði
Já
Hljóð
Hljóðstyrkur (dB)
58
Annað
Annað
4G selt sem aukahlutur