Haldið verður upp á opnun endurbætts Raflands í Síðumúla 2 dagana 12. til 15. mars.
Starfsfólk tekur fagnandi á móti gestum dagana 12. til 15. mars og á staðnum verður hægt að snúa lukkuhjóli sem gefur vinning í hverjum snúning. Þáttakan gildir einnig í stóra gjafaleikinn en þar er hægt að vinna KitchenAid hrærivél eða Sonos hljóðstöng.
Í tilefni opnunarinnar eru glæsileg opnunartilboð í gildi til 15. mars og allar vörur eru á 10-30% afslætti.
Á tilboði má finna sjónvörp, hrærivélar, hljómtæki og heimilistæki frá hágæða vörumerkjum eins og LG, KitchenAid, Sonos, Samsung og fleiri þekktum stórframleiðendum á heimilis- og raftækjamarkaðnum.
Verslunin, sem áður var skipt í tvær deildir, heimilistækjadeild í Síðumúla 4 og sjónvarps-og raftækjadeild í Síðumúla 2, hefur nú sameinað báðar deildir í eina stóra, bjarta og glæsilega verslun og fengið allsherjar yfirhalningu. Rýmið hefur verið teppalagt að nýju, deildir endurskipulagðar, vöruúrvalið uppfært og hillueiningar endurnýjaðar.
Í Raflandi er lögð áhersla á sérhæfða þjónustu og þar starfar reynslumikið starfsfólk með margra ára þekkingu á vöruúrvalinu. Því er tilvalið að heimsækja verslunina til þess að fá vandaða ráðgjöf þegar uppfæra á tækjakost heimilisins.
Verið hjartanlega velkomin í endurnýjað og enn betra Rafland.