JBL Bluetooth Hátalari GO5 | rafland.is

JBL Hljómur
JBL Go 5
skilar enn öflugra og áhrifameira hljóði en áður, með hinum þekkta og vinsæla JBL hljómi. Hátalarinn er svo smár að hann passar auðveldlega í lófa en skilar samt hljóðupplifun sem jafnast á við mun stærri hátalara.

Umhverfislýsing
Skapaðu réttu stemninguna með glæsilegri lýsingu á brúnum hátalarans. Þú getur valið á milli mismunandi ljósastillinga og litaþema sem gefa sjónrænar upplýsingar um stöðu tækisins, svo sem:

  • Þegar kveikt eða slökkt er á hátalaranum
  • Við pörun við önnur tæki
  • Þegar rafhlaðan er að tæmast
  • Þegar Auracast™-stilling er virk

Þessi lýsing gerir notkunina bæði skemmtilegri og þægilegri.

Allt að 10 klukkustunda rafhlöðuending
JBL Go 5 býður upp á allt að 8 klukkustunda samfellda spilun, og með Playtime Boost er hægt að bæta við allt að 2 klukkustundum til viðbótar.
Allt að 10 klukkustunda notkun á einni hleðslu

Vatns og rykheldur
Hvort sem þú ert á ströndinni, lendir í óvæntu rigningarveðri eða missir hátalarann óvart, þá stendur JBL Go 5 sig vel.

Hátalarinn er:

  • IP68 vottaður, sem þýðir framúrskarandi vörn gegn vatni og ryki
  • Hannaður til að þola daglegt hnjask og minniháttar fall

Þú getur því treyst honum til að spila tónlistina nánast hvar sem er.

AirTouch
Með AirTouch er einfalt að tengja tvo JBL Go 5 hátalara saman. Snertu eða færðu hátalarana saman og þeir para sig sjálfkrafa.
Kerfið skiptir hljóðinu sjálfkrafa í:

  • Vinstri rás
  • Hægri rás

Þannig fæst breiðari og raunverulegri hljóðmynd

Auracast™
Viltu enn stærra hljóð? Með Auracast™ geturðu tengt marga JBL-hátalara sem styðja tæknina saman þráðlaust.

Kostirnir eru:

  • Meira hljóðumfang
  • Jafnari dreifing hljóðs yfir stærra svæði
  • Yfirgripsmeiri og áhrifameiri hlustunarupplifun

Þetta hentar sérstaklega vel fyrir samkomur, veislur eða útivist þar sem fleiri en einn hátalari getur gert gæfumuninn.

Lossless Audio
Tengdu hátalarann í gegnum USB-C og hlustaðu á tónlistina í bestu gæðum.
JBL Go 5 styður:

  • Lossless Audio
  • Hágæða hljóðstreymi

* Krefst samhæfs tapslauss hljóðefnis frá studdum öppum eða streymisþjónustum.

JBL Portable app
Með JBL Portable appinu er hægt að:

  • Fínstillt hljóðið með 7 banda tónjafnara (EQ)
  • Breytt ljósastillingum og lýsingarþemum
  • Uppfært hugbúnað hátalarans
  • Stjórnað ýmsum stillingum auðveldlega úr símanum

Hljóðupplifun sem hentar þinni tónlist og þínum smekk.

Samhæfni við JBL EasySing Mic Mini
JBL Go 5 er samhæfur við JBL EasySing Mic Mini hljóðnemann. Það gerir þér kleift að syngja með uppáhaldslögunum þínum, halda skemmtileg karókíkvöld eða nota hátalarann fyrir tal og afþreyingu.

Hátalarar

Stærð keilu

45mm / 1.75"

Power output (PEAK)

4.8W RMS

Tíðnisvið

100Hz-19kHz (-6 dB)

Net

Bluetooth

6

Tengimöguleikar

Fjöldi USB-C tengja

1

Eiginleikar

Auracast

Já

Partytime Boost

Já

Veðurvörn

Já (IP68)

JBL Portable app

Já

Hleðslutími

3 Klst

Rafhlaða

Gerð

Li-ion

Ending

allt að 8 klst ending (10 klst Partytime Boost)

Stærðir

Litur

Fjólublár

Undirlitur

Fjólublár

Þyngd

230 gr

Stærð (B x H x D)

101 x 774 x 43 mm

Annað

Annað

USB-C kapall fylgir ekki (aukahlutur)