Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
CustomTune fyrir
sérsniðinn hljóm
CustomTune-tæknin greinir hvernig heyrnartólin sitja á eyrunum og aðlagar hljóminn
að hlustandanum. Í Bose appinu má síðan stilla bassa, miðtóna og hátóna ásamt
því aðútbúa eigin hlustunarstillingar.
Virk hljóðeinangrun og
Aware-stilling
Virk hljóðeinangrun dregur úr umhverfishljóðum þegar þú vilt einbeita þér að
tónlistinni, hlaðvarpi eða myndefni. Aware-stilling hleypir umhverfishljóðum í
gegn og ActiveSense dempar skyndileg eða hávær umhverfishljóð.
Bose Immersive Audio
Bose Immersive Audio lætur hljóðið virðast koma utan frá í stað þess að vera
bundið við heyrnartólin. Útkoman er rýmri og eðlilegri hljóðupplifun fyrir
tónlist, kvikmyndir og annað efni. Still-stilling heldur hljóðmyndinni á sama
stað þegar þú snýrð höfðinu, en Motion-stilling lætur hljóðmyndina fylgja
hreyfingum þínum.
Cinema Mode fyrir myndefni
Cinema Mode notar rýmishljóð til að skapa breiðari hljóðmynd fyrir kvikmyndir,
þætti og annað myndefni. Stillingin dregur fram tal og jafnar hljóðblönduna svo
samtöl haldist skýr án þess að tónlist og hljóðáhrif hverfi í bakgrunninn.
Allt að 30 klukkustunda
rafhlöðuending
Heyrnartólin bjóða upp á allt að 30 klukkustunda notkun þegar Immersive Audio
er óvirkt og allt að 23 klukkustundir með rýmishljóðið virkt. Full hleðsla
tekur um þrjár klukkustundir og 15 mínútna hraðhleðsla veitir allt að þriggja
klukkustunda notkun.
Þráðlaus eða snúrutengd
hlustun
Hlustaðu þráðlaust með Bluetooth eða
tengdu heyrnartólin með USB-C eða meðfylgjandi hljóðsnúru. Með USB-C er einnig
hægt að hlusta á meðan heyrnartólin eru í hleðslu.
Tengd við tvö tæki í einu
Heyrnartólin geta verið tengd við tvö
Bluetooth-tæki samtímis, til dæmis síma og fartölvu. Þannig geturðu hlustað á
tónlist úr tölvunni og svarað símtali úr símanum án þess að tengja heyrnartólin
upp á nýtt. Innbyggðir hljóðnemar sjá til þess að röddin heyrist skýrt í
símtölum.
Fylgihlutir
Með heyrnartólunum fylgja harðskelja ferðahulstur, 3,5 mm í 2,5 mm hljóðsnúra
og USB-C í USB-C snúra.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Flokkur
Yfir eyru
Strikamerki vöru
017817859585
Eiginleikar
Active noise cancelling
Já
Ferðahleðsla
Nei
Hleðslutími
3klst
Hljóðnemi
Innbyggður
Fylgihlutir
Ferðahulstur, 3,5 mm í 2,5 mm hljóðsnúra og USB-C í USB-C snúra
Rafhlaða
Ending
Allt að 30 klst. eða allt að 23 klst. með Immersive Audio
Net
Bluetooth
5.4
Stærðir
Litur
Svartur
Þyngd
480g
Annað
Tengimöguleikar heyrnartóla
Bluetooth
Með hljóðvörn
Já