Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
80 cm spanhelluborð frá AEG með innbyggðum gufugleypi sem dregur gufu og matarlykt niður beint frá eldunarsvæðinu. Helluborðið hentar einstaklega vel á eldhúseyjar eða þar sem óskað er eftir opnu og snyrtilegu rými án hefðbundins gufugleypis fyrir ofan hellurnar.SenseBoil® suðuskynjarinn nemur þegar suða kemur upp og lækkar hitann sjálfkrafa til að koma í veg fyrir að sjóði upp úr. SenseFry viðheldur jöfnum hita við steikingu og býður upp á þrjár hitastillingar sem auðvelda að ná stöðugri niðurstöðu. Með PreciseHeat er hægt að velja á milli níu aflstiga í hálfum þrepum og hvert eldunarsvæði er með sjálfstæðan tímastilli.Helluborðið er með fjórum 21 cm eldunarsvæðum sem hvert um sig skilar 2.300 W afli við hefðbundna notkun. Booster er á öllum fjórum hellunum og eykur aflið tímabundið í allt að 3.200 W þegar þörf er á hraðari upphitun. DoubleBridge gerir einnig kleift að tengja saman tvö eldunarsvæði sitt hvorum megin á helluborðinu. Hitastillingar og tímastýring samræmast þá á tengdu svæðunum, sem hentar vel fyrir stór eða ílöng eldunarílát.Mattsvart SaphirMatt® yfirborðið sér til þess að fingraför sjáist síður á þvíog er allt að tíu sinnum rispuþolnara en hefðbundið keramikgler frá AEG. Beinar brúnir gefa helluborðinu látlaust og vandað yfirbragð og hægt er að fella það niður í borðplötuna eða setja það ofan á hana.Gufugleypirinn býður upp á þrjár hraðastillingar auk öflugrar Intense-stillingar og afkastar allt að 650 m³ á klukkustund. Breeze-stillingin heldur áfram að hreinsa loftið að eldun lokinni, en gaumljós láta vita þegar þrífa þarf fitusíurnar eða sinna kolsíunni. Fitusíurnar og OdourClean Plus kolsían mega fara í uppþvottavél. Kolsíuna má hreinsa í uppþvottavél og þurrka síðan í ofni, svo hægt sé að nota hana áfram. Þetta má gera allt að átta sinnum og áætlaður endingartími síunnar er allt að þrjú ár.Helluborðið er einnig búið Direct Touch snertistýringu, barnalæsingu og sjálfvirkri öryggisslökkvun. Uppsetningarhlutar og lagnir fylgja með til að auðvelda frágang.
Nánari tæknilýsing
Stærðir
Innbyggingarmál (B x D)
75–78 × 49 cm
Innbyggingarmál (B x H x D)
75–78 × 22,5 × 49 cm
Fjöldi hella
4
Glerkantur
Já (án fláa)
Sogstyrkur
270 / 550 / 650 m³/klst.
Hljóðstyrkur
50 / 66 / 69 dB
Litur
Svartur
Breidd í cm
80
Eiginleikar
Stop and go
Já
Snertisleði
Já
Snertitakkar
Já
Samtenging á hellu
Já
Booster
Já
Kolasía
OdourClean Plus
Barnalæsing
Já
Innfellanleg / með fláa
Já
Innbyggður gufugleypir
Já
Afl
Orkuflokkur
A+ (2020)
Orkunotkun
33 kWh
Heildarafl
7350 W
Almennar Upplýsingar
Tegund
Span hellur
Strikamerki vöru
7333394155166
Orkunotkun
A+ (2020)
