Vidskiptaskilmalar | rafland.is | rafland.is

vidskiptaskilmalar

Vinsamlega lestu yfir viðskiptaskilmála okkar áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að versla við vefverslun okkar samþykkir þú þessa skilmála.

*Greiðsluleiðir *

Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumáta:

Visa/Mastercard Visa/Mastercard raðgreiðslur Netgíró SíminnPay Léttkaup Millifærslur Ef upp koma greiðsluvandamál, t.d. ef greitt er með stolnu korti, þá áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntun.

Athugið að ef vara er sótt og greidd með kreditkorti verður korthafi sjálfur að sækja og framvísa skilríkjum. Greitt er á öruggri greiðslusíðu Borgunar, en til að tryggja öryggi korthafa notast Borgun við ítrustu öryggisstaðla og öll gögn eru SSL dulkóðuð. Rafland fær aldrei upplýsingar um greiðslukortanúmer heldur aðeins þær upplýsingar hvort greiðsla hafi farið í gegn.

*Afhending vöru *

Viðskiptavinur getur valið að sækja vörur á lager Raflands í Reykjavík eða að sækja verslun okkar í Síðumúla 2-4. Velji viðskiptavinur að sækja vöruna í vöruhús eða í verslun fær hann tilkynningu þegar vara er tilbúin til afhendingar á viðeigandi afhendingarstað. Afgreiðsla og afhending pantana tekur alla jafna 1-2 virka daga, með fyrirvara um álag og að allar vörur séu til á lager. Flestar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða daginn eftir.

Velji viðskiptavinur að fá pöntun senda getur hann valið að fá pöntun senda heim að dyrum eða á næstu stöð þess flutningsaðila sem pantað er með. Flutningsaðili fer eftir eðli pöntunar, en smærri vörur eru sendar með Póstinum heim að dyrum eða á næsta pósthús/póstbox. Þá sér bílstjóri Raflands um að keyra út stærri heimilistæki á höfuðborgarsvæðinu, en Samskip sér um flutning út á land, á næstu stöð eða heim að dyrum.

Þeir valmöguleikar sem eru í boði fyrir viðskiptavin, og gjald fyrir heimsendingu, reiknast áður en gengið er frá pöntun.

Af öllum pöntunum dreift af Póstinum og Samskip gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins og Samskipa um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins og vefsíðu Samskipa.

Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.

*Skilaréttur *

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun kaupnótu eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt eða afhent. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 14 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi eða afhendingu vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru. Skilaréttur þessi gildir ekki af sérpöntunum eða notuðum vörum.

Þurfi að senda vörur til Raflands ber viðskiptavini að tilkynna eins fljótt og auðið er að hann ætli að nýta sér skilaréttinn. Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til Raflands. Finna má staðlaðar leiðbeiningar og uppsagnareyðublað á neytendasamningi í viðauka 1 og 2 í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi.

Vörum með skiptimiða er hægt að skila og fá inneignarnótu ef þær eru í óopnuðum umbúðum, svo fremi að varan sé enn í sölu og þá gildir það verð sem er á þeim degi sem skilað er.

Markmið Raflands er hins vegar að fullnægja þörfum viðskiptavinar. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru, óháð fyrirfram ákveðnum tímaramma, er reynt að verða við því.

Ábyrgðarskilmálar Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á sala@rafland.is. Rafland áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð.

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003, en vörum sem ætlaður er umtasvert lengri endingartími en 5 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgðartíma á framleiðslugöllum. Jafnframt eru vörur úr Kitchenaid Artisan línunni, m.a. hin vinsæla Kitchenaid Artisan hrærivél, með 5 ára ábyrgðartíma. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru.

Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Raflands eða öðru verkstæði sem Rafland samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en viðurkenndu verkstæði Raflands, búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð og gildir ábyrgðin frá kaupdegi.

Persónuupplýsingar Öll söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga þinna eru unnin í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að við getum uppfyllt þá þjónustu sem er í boði þegar verslað er í vefversluninni þá þurfum við að fá upplýsingar um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer. Við vistum engar greiðsluupplýsingar aðrar en hvaða greiðslumiðil var notast við þegar greitt var fyrir pöntunina.

Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga.

Tryggingaskilmálar Í mörgum tilfellum býðst viðskiptavinum okkar að kaupa viðbótartryggingu með vöru. Viðbótartrygging veitir víðtækari rétt en hefðbundnir ábyrgðarskilmálar líkt og sjá má á skýringartöflunni hér fyrir neðan.

Image

Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um viðbótartryggingar.

Úrlausn vafamála

Komi upp ágreiningsmál varðandi þjónustu og skildur Raflands er viðskiptavinum bent á Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa á vef Neytendastofu.

Allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um breytingar og/eða villur. Einstaka myndir gætu verið af sambærilegri vöru þegar rétt mynd er ekki fáanleg frá framleiðanda.

Verð á vefnum er birt í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í verði. Verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.

Rafland er rekið af RL hf Kt. 5101690269 Síðumúla 2-4 108 Reykjavík Vsk. nr. 11930

Þessi síða var uppfærð síðast 16.07.20